Halli Reynis


Go to content

Þetta kemur þér ekki við

Textar > Textar

Þetta kemur þér ekki við
Lag og texti: Halli Reynis

Það er sárt þegar sannleikurinn lýgur.
Sögurnar teyma þig á brott.
Um alla borg, fiskisagan flýgur,
fæðir af sér aulaglott.

Það er vont að vakna upp að morgni,
í veröld sem talar undir rós.
Sálartetrið er einmanna úti í horni,
eins og myrkur sem þráir ljós.

Þetta kemur þér ekki við.
Þessi frétt þoldi enga bið.
Þetta kemur,
þetta kemur,
þetta kemur þér ekki við.

Horfðu út úr hjarta þínu.
Hugsaðu svolítið skýrt.
Það liggur brotinn maður í blóði sínu,
að benda á hann verður honum dýrt.

Hann var út í fjarlægðina flæmdur.
Flótti var hans eina svar.
Út úr hópnum dreginn og dæmdur
af dómstólum götunnar.

Þetta kemur þér ekki við.
Þessi frétt þoldi enga bið.
Þetta kemur,
þetta kemur,
þetta kemur þér ekki við.

Það gerðist sem kjaftasagan kunni.
Það klikkaði ekki sölulega séð.
Myndin var fín á forsíðunni,
fyrirsögnin með.

Það er vont að vakna upp að morgni,
í veröld sem talar undir rós.
Sálartetrið er einmana úti í horni,
eins og myrkur sem þráir ljós.

Þetta kemur þér ekki við.
Þessi frétt þoldi enga bið.
Þetta kemur,
þetta kemur,
þetta kemur þér ekki við.

Heim | Halli Reynis | Útgáfan | Textar | Myndir | Gítarkennsla | Hlusta | Site Map

eXTReMe Tracker

Back to content | Back to main menu