Halli Reynis


Go to content

Andlitin

Textar > Textar

Andlitin
Lag og texti: Halli Reynis

Mörg eru andlitin sem á þig stara,
una því vel og með þér fara,
í ferðalag til fjarlægra heima,
í fjölbreyttum sögum er söngvarnir geyma.

Mörg eru andlitin sem á þig líta,
og augnaráð sem erfitt er að slíta,- sér frá
sumir elska, aðrir fyrirlíta
en þú ert frjáls meðan tónarnir streyma.

Mörg eru andlitin sem að þér hæðast,
óvarinn finnur þú skjálftann fæðast,
í hjartanu litla sem lemur hraðar, hraðar,
hræðslan er alltaf til staðar

Mörg eru andlitin sem af þér dást
svo oft í þínum sölum sjást
það er jú einhverskonar ást
eitthvað sem heillar og laðar.


Heim | Halli Reynis | Útgáfan | Textar | Myndir | Gítarkennsla | Hlusta | Site Map

eXTReMe Tracker

Back to content | Back to main menu