Andlitin
Lag og texti: Halli Reynis
Mörg
eru andlitin sem á þig stara,
una því vel og með þér fara,
í ferðalag til fjarlægra heima,
í fjölbreyttum sögum er söngvarnir geyma.
Mörg
eru andlitin sem á þig líta,
og augnaráð sem erfitt er að slíta,- sér
frá
sumir elska, aðrir fyrirlíta
en þú ert frjáls meðan tónarnir streyma.
Mörg
eru andlitin sem að þér hæðast,
óvarinn finnur þú skjálftann fæðast,
í hjartanu litla sem lemur hraðar, hraðar,
hræðslan er alltaf til staðar
Mörg
eru andlitin sem af þér dást
svo oft í þínum sölum sjást
það er jú einhverskonar ást
eitthvað sem heillar og laðar.
|