Textar > Textar
Allt sem ég óska mér
Lag og texti: Halli Reynis
Þú ert heillastjarna
Þú ert gæfa mín
Þú ert blóm sem angar
Þú ert óskin mín
Þú ert fræið sem blómstrar í hjartanu mínu
Þú ert heiður himinn
Þú ert geisli sem skín
Þú ert hönd sem leiðir
Þú ert lukkan mín
Þú ert fræið sem blómstrar í hjartanu mínu
Þessi augu, þessi munnur
Þessi friður sem er yfir þér
Þetta hörund, þessar hendur
Það er allt sem ég óska mér
Það er allt sem ég óska mér
Þú ert heiðarleiki
Þú ert vinur minn
Þú ert ljósið bjarta
Þú ert sannleikurinn
Þú ert fræið sem blómstrar í hjartanu mínu
Þessi augu, þessi munnur
Þessi friður sem er yfir þér
Þetta hörund, þessar hendur
Það er allt sem ég óska mér
Það er allt sem ég óska mér
Ef þú meiðir þig þá skal ég búa um sárin,
ef sorgir þig sækja þá skal ég þig hugga
og grátir þú þá skal ég þerra tárin,
svo bjötum augum þú lítur út þinn sálarglugga.
- Sálarglugga.
Þú ert heillastjarna…..
Þú ert heiður himinn….
Þessi augu, þessi munnur….