Textar > Textar
Aldrei einn
Lag og texti: Halli Reynis
Leiksvið okkar er eins og lúmska hafið
og líf manns eins og bátur þar úti á .
Þó er einhver annar sem stendur við stýrið
og stjörnurnar vita hver mun landi ná.
Út á hafið hetjurnar fóru,
svo heyrði ég í morgun þessi orð.
“Það var mannskætt veður á miðunum í nótt
og maður fyrir borð”.
Aldrei einn
Aldrei einn
Hann var sendur til að gæta okkar hinna.
Aldrei einn
Aldrei einn
Nú situr hann við háborð feðra sinna.
Hann er hjá mér hvert sem leiðin liggur.
Líf hans verður ljósið mitt um stund.
Þessvegna er engin ástæða að vera hryggur,
því við eigum eftir að eiga okkar fund.
Aldrei einn
Aldrei einn
Hann var sendur til að gæta okkar hinna.
Aldrei einn
Aldrei einn
Nú situr hann við háborð feðra sinna.