Rándýrsaugu
Lag og texti: Halli Reynis

Á sunnudagsmorgni, sumpartinn svekktur og sár
bíræfinn böðull sat þarna í myrkrinu blár.
Á kvöldin á kránni, klókur hann virtist og klár.

Blettur í teppi, tappalaus flaska á hlið
aska á borði, kemur það mér eitthvað við.
Á kvöldin á kránni, klárari virtist en þið.

Hann hefur rándýrsaugu,
er alltaf á veiðum.
Þú veist hver hann er.
Þú þráir að hitt´ann
því nafn hans er oft,
á vörum þér.

Ónýtir stólar, rauðvín úr rifunum rann,
buxur og sokkar sem enginn gat átt nema hann.
Á kvöldin á fránni, sögurnar segja hann kann.

Óbragð í munni, storknað í nefinu blóð,
aumur í hendi, blankur á gólfinu stóð.
Á kvöldin á kránni, fjöldanum uppúr hann stóð.

Hann hefur rándýrsaugu,
er alltaf á veiðum.
Þú veist hver hann er.
Þú þráir að hitt´ann
því nafn hans er oft,
á vörum þér.